![]() |
Samstarf Kolviðar og Þekkingarmiðlunar
Kolviður og Þekkingarmiðlun hafa tekið saman höndum og skapað vettvang fyrir fyrirtæki og stofnanir sem vilja kynna stefnu sína í umhverfismálum. Kolviður og Þekkingarmiðlun eiga það sameiginlegt að miðla fræðslu og benda á mögulegar aðgerðir til góða fyrir umhverfið. Einn liður fræðslunnar er að koma á framfæri og gera sýnilegar þær aðgerðir sem fyrirtæki hafa gripið til í því skyni að gera starfsemi sína umhverfisvænni. Þannig geta fyrirtæki og stofnanir sem hafa hug á að vinna umhverfisstefnu séð hvernig önnur fyrirtæki vinna að þeim málum og almenningi gefst kostur á að fylgjast með hvað fyrirtæki og stofnanir eru að gera á sviði umhverfismála.
Sjá umhverfisstefnu Þekkingarmiðlunar hér.
Umhverfisstefnur fyrirtækja








