Veftré  Prenta  Stór leturstærð  Eðlileg leturstærð
Forsíða   |   Um Kolvið   |   Reiknivél   |   Gjafabréf   |   Fréttir   |   English
Jafnaðu þig í einum grænum!
Ríkisstjórn Íslands

Ríkisstjórn Íslands er stoltur bakhjarl Kolviðar enda er hugmyndin að baki hans í anda stefnu ríkisstjórnarinnar. Kolviður mun leggja sitt af mörkum til að ná þeim langtímamarkmiðum sem íslensk stjórnvöld hafa sett um að minnka umtalsvert nettólosun gróðurhúsalofttegunda. Ríkisstjórnin fagnar því að frjáls og öflug félagasamtök eins og Skógræktarfélag Íslands og Landvernd hafi forystu um að gefa almenningi og fyrirtækjum kost á því að bregðast við og taka ábyrgð á eigin losun gróðurhúsalofttegunda. Mikilvægt er að einstaklingar og fyrirtæki bregðist skjótt og vel við þessu framtaki. Ríkisstjórnin mun ekki láta sitt eftir liggja og hefur þegar ákveðið að allir bílar Stjórnarráðsins verði kolefnisjafnaðir um leið og starfsemi Kolviðar hefst og frá og með næstu áramótum verða allar flugferðir starfsmanna Stjórnarráðsins einnig kolefnisjafnaðar.

Ríkisstjórnin hefur ennfremur ákveðið að beina þeim tilmælum til allra ríkisstofnana að við endurnýjun á bifreiðum í eigu ríkisins verði almennt keyptar vistvænar útfærslur á bílum. Er að því stefnt að í lok árs 2008 verði 10% bifreiða í eigu ríkisins knúnar vistvænum orkugjöfum, 20% í lok árs 2010 og 35% í lok árs 2012. Jafnframt hefur vörugjald af metanbílum verið fellt niður tímabundið fram til ársloka 2009 í því skyni að hvetja enn frekar til notkunar á vistvænum bílum.

Ríkisstjórnin óskar starfsemi Kolviðar allra heilla og væntir þess að hún eigi eftir að leggja sitt af mörkum til að við Íslendingar verðum áfram í framvarðasveit þjóða í baráttunni gegn loftslagsbreytingum.