Veftré  Prenta  Stór leturstærð  Eðlileg leturstærð
Forsíða   |   Um Kolvið   |   Reiknivél   |   Gjafabréf   |   Fréttir   |   English
Jafnaðu þig í einum grænum!
Arion banki

Það er Arion banka mikil ánægja að tengjast þessu spennandi og þarfa verkefni. Stuðningur bankans við umhverfismál á sér langa sögu í gegnum Búnaðarbanka Íslands. Og það var einmitt Búnaðarbanki Íslands sem varð með þeim allra fyrstu – ef ekki fyrstur allra – til þess að gera fegurð og hreinleika íslenskrar náttúru að yrkisefni í auglýsingum sínum. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar í umhverfismálum og segja má að þau hafi, eins og svo margt annað í íslensku samfélagi, alþjóðavæðst á örskömmum tíma. Við erum hluti af hnattrænu samfélagi sem glímir við sameiginlegan vanda á umhverfissviðinu og vonlaust er að ná árangri til lausnar nema þjóðir heims taki höndum saman. Framlag okkar er ekki stórt á heimsvísu, en óhætt er að slá því föstu að hvert eitt skref sem tekið er til að bæta umhverfið til framtíðar, er skref í þá átt að draga úr áhrifum sem loftslagsbreytingar hafa haft og munu hafa á lífsgæði fólks.

Auk þess að vera bakhjarl Kolviðar hafa stjórnendur Arion banka ákveðið í samstarfi við starfsmenn að afkola allan bílaflota þeirra á Íslandi og einnig að afkola allar flugferðir starfsmanna bankans, til og frá Íslandi. Þetta þýðir með öðrum orðum, að bankinn hyggst gróðursetja tré til að vinna á móti mengun af bílnotkun starfsmanna og ferðalögum þeirra á vegum bankans