Veftré  Prenta  Stór leturstærð  Eðlileg leturstærð
Forsíða   |   Um Kolvið   |   Reiknivél   |   Gjafabréf   |   Fréttir   |   English
Jafnaðu þig í einum grænum!
Ársreikningur

Árið 2007 var fyrsta starfsár Kolviðar, vefsíðan var opnuð í maí 2007 og náði reksturinn því yfir rúma 7 mánuði ársins. Áður en sjóðurinn tók til starfa hafði hugmynda- og þróunarvinna farið fram innan vébanda stofnenda sjóðsins á árunum 2005 og 2006 en ríkisstjórn Íslands hafði veitt kr. 2 milljóna styrk til að standa straum af útlögðum kostnaði. Annar stofnkostnaður á árinu 2007 var greiddur af bakhjörlunum Orkuveitu Reykjavíkur og Kaupþingi fyrst og fremst, en þar má telja auglýsingar og kynningar, vefsíðugerð, ýmsan launakostnað, reikingslega aðstoð og lögfræðikostnað. Ársreikningur Kolviðar er endurskoðaður af KPMG og kynntur á aðalfundum stofnenda sjóðsins, Landverndar og Skógræktarfélags Íslands. Lykiltölur úr rekstri 2007, 2008 og 2009: 
 

Rekstrartekjur:  2009 2008 2007
Kolefnisjöfnun 15.823.290 14.666.875 10.837.196
 
Rekstrargjöld:
Kostnaður vegna gróðursetningar 9.999.667 10.097.931 7.689.475
Annar rekstrarkostnaður 4.502.397 4.067.114 3.200.620


Meðal annarra rekstrarkostnaðarliða má telja launakostnað, símakostnað, pappír og prentun, annan skrifstofukostnað, rekstur vefsíðu og endurskoðun og reikningsskil. Annar rekstrarkostnaður sem hlutfall af rekstrartekjum mun fara lækkandi eftir því sem sjóðurinn vex og dafnar.

Á fyrsta rekstrarári Kolviðar 2007 skuldbatt sjóðurinn sig til að gróðursetja 73.152 plöntur. Í upphafi voru gróðursettar um 2.700 plöntur á hvern hektara og svara skuldbindingar ársins 2007 til 27 hektara. Seld kolefnisjöfnun nam 7.784 tonnum af CO2.

Á árinu 2008 skuldbatt sjóðurinn sig til að gróðursetja 98.435 plöntur sem svarar til 31,8 hektara. Seld kolefnisjöfnun nam 10.476 tonnum af CO2.

Á árinu 2009 skuldbatt sjóðurinn sig til að gróðursetja 90.964 plöntur. Seld kolefnisjöfnun nam 9.683 tonnum af CO2.