Veftré  Prenta  Stór leturstærð  Eðlileg leturstærð
Forsíða   |   Um Kolvið   |   Reiknivél   |   Gjafabréf   |   Fréttir   |   English
Jafnaðu þig í einum grænum!
Um Kolvið

Kolviður er sjóður sem miðar að því að binda kolefni í gróðri og jarðvegi í þeim tilgangi að draga úr styrk koldíoxíðs (CO2) í andrúmslofti. Viðskiptavinir Kolviðar kaupa kolefnisbindingu til þess jafna útblástursmengun ökutækja sinna og vegna flugferða sem og skipaflutninga. Reiknilíkan á vefsíðu Kolviðar býður viðskiptavinum að leggja fé í sjóðinn sem síðan fjármagnar skógræktaraðgerðir s.s. gróðursetningu trjáa á svæðum sem hafa verið gerðir langtímasamningar (90 ár) um. Sjóðurinn gerir samninga við skógrækarfélög eða verktaka um gróðursetningu og umsjón með skóginum. Þetta ferli er síðan vottað og árangursvaktað af KPMG.

Auk kolefnisbindingar er markmið sjóðsins að binda jarðveg og draga úr jarðvegseyðingu, einu helsta umhverfisvandamáli Íslendinga, og að auka vitund um losun gróðurhúsalofttegunda. Sjóðurinn hvetur til að dregið sé úr losun gróðurhúsalofttegunda af fremsta megni, og til kolefnisbindingar í jarðvegi og gróðri fyrir þá losun sem óhjákvæmileg er.


Stofnaðilar Kolviðar eru Skógræktarfélag Íslands og Landvernd.
Bakhjarlar sjóðsins eru ríkisstjórn Íslands, Orkuveita Reykjavíkur og Kaupþing.
Tengiliður Kolviðar er Jóhann Guðni Reynisson.

 

Kolviður - sjóður

Kennitala: 560606-1170

Skúlatún 6

105 Reykjavík

Sími: 5518150/gsm 6611711

Netfang: kolvidur@kolvidur.is