Veftré  Prenta  Stór leturstærð  Eðlileg leturstærð
Forsíða   |   Um Kolvið   |   Reiknivél   |   Gjafabréf   |   Fréttir   |   English
Jafnaðu þig í einum grænum!
Styrkur CO2 í andrúmslofti

Bruni jarðefnaeldsneytis hefur leitt til mikillar losunar koldíoxíðs (CO2) út í andrúmsloftið frá upphafi iðnbyltingar snemma á nítjándu öld. Styrkur koldíoxíðs í andrúmsloftinu er nú 380 ppm. Myndin hér að neðan sýnir hvernig styrkur CO2 í andrúmlofti hefur aukist stöðugt. Mælingarnar eru frá Mauhi Loa á Hawai en styrkur CO2 dreifist afar jafnt um lofthjúp jarðar. Ársbundnu sveiflurnar sem greina má á grafinu skýrast af "öndun jarðar" en þar sem stór meirihluti landmassa jarðar er á norðurhveli þá verður árstíðarmunur á bindingu gróðurs áberandi. Þegar trén eru að binda koldíoxíðs á sumrin þá minnkar styrkur CO2 örlítið en rís svo aftur að vetri.



Með því að rannsaka ískjarna er hægt að meta styrk koldíoxíðs í andrúmslofti langt aftur í tímann. Eins og sést á myndinni hér að neðan þá er styrkurinn að ná gildum sem eru langt frá náttúrulegri sveiflu. Þetta telja menn vera áhyggjuefni þar sem samband virðist verða milli styrks CO2 og hitastigs á hverjum tíma.



Hvað veldur svo þessari miklu aukningu á styrk koldíoxíðs? Bruni jarðefnaeldsneytis er eðlilegasta skýringin enda er bruni þess í góðu samræmi við aukninguna.