Aukin gróðurhúsaáhrif kunna að valda loftslagsbreytingum. Líklegar afleiðingar loftslagsbreytinga á jörðinni yrðu meðal annars þær að gróðurbelti færðust til, yfirborð sjávar myndi hækka og flóðahætta aukast á ýmsum frjósömum og þéttbýlum svæðum. Auk þess kynnu að verða breytingar á lífsskilyrðum í sjó vegna breytinga á straumum og seltu.

Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna (IPCC) um loftslagsbreytingar hefur lagt mat á hugsanlega þróun í útstreymi gróðurhúsalofttegunda til næstu aldamóta og hefur í því sambandi skilgreint mismunandi sviðsmyndir sem byggja á forsendum um fólksfjölgun, efnahagsþróun, tækniþróun og aðgerðir til þess að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda. Hagstæðasta sviðsmyndin gerir ráð fyrir því að styrkur koltvíoxíðs verði 540 ppm um næstu aldamót en við verstu aðstæður getur þessi styrkur orðið 970 ppm. Þessi aukning á að miklu leyti rætur að rekja til mannlegra athafna, þá einkum til bruna á jarðefnaeldsneyti og eyðingar skóga.
![]()
Í hverju felast loftslagsbreytingar
Aukinn styrkur gróðurhúsalofttegunda í andrúmslofti er talinn leiða til röskunar á veðurfari á jörðinni, m.a. hækkun á meðalhita. Hve mikil sú hlýnun verður ræðst af þróun í útstreymi gróðurhúsalofttegunda en milliríkjanefnd um loftslagsbreytingar spáir hækkun á hitastigi á bilinu 1,4-5,2°C næstu hundrað árin. Slík hlýnun á sér ekki hliðstæðu í loftslagssögu jarðar síðasta árþúsundið. Talið er að hlýnað hafi um 0,6°C síðustu hundrað árin og svo virðist sem hraði hlýnunarinnar hafi aukist á síðustu 20 árum.
Efnið er fengið af vef Umhverfisstofnunnar.

Jafnaðu þig í einum grænum!
Loftslagsbreytingar
Hér getur þú reiknað út
það magn koldíoxíðs (CO2) sem
þú losar út í andrúmsloftið í akstri.
það magn koldíoxíðs (CO2) sem
þú losar út í andrúmsloftið í akstri.
Markmið Kolviðar er að hvetja Íslendinga
til þess að verða fyrsta þjóð heims til að
kolefnisjafna útblástursáhrif samgöngutækja
sinna með skógrækt.
til þess að verða fyrsta þjóð heims til að
kolefnisjafna útblástursáhrif samgöngutækja
sinna með skógrækt.
Vottun og innra eftirlit
Endurskoðunartíminn KPMG mun í sam-vinnu við óháða fagaðila á sviði skógræktar
og landgræðslu votta ferlið og staðfesta að
Kolviður sjái fyrir þeirri bindingu kolvetnis
sem sjóðurinn tekur að sér.
Hlutverk kolviðar er að gera
einstaklingum, fjölskyldum,
stofnunum og fyrirtækjum
kleift að jafna kolefnislosun
sína vegna samgangna með skógrækt.
Nafnið Kolviður má rekja til Kolviðar
á Vatni, fornkappa sem felldur var við
Kolviðarhól og heygður.
einstaklingum, fjölskyldum,
stofnunum og fyrirtækjum
kleift að jafna kolefnislosun
sína vegna samgangna með skógrækt.
Nafnið Kolviður má rekja til Kolviðar
á Vatni, fornkappa sem felldur var við
Kolviðarhól og heygður.






