Veftré  Prenta  Stór leturstærð  Eðlileg leturstærð
Forsíða   |   Um Kolvið   |   Reiknivél   |   Gjafabréf   |   Fréttir   |   English
Jafnaðu þig í einum grænum!
Fréttir
15.05.07

Jafnaðu þig í einum grænum!

Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, opnaði vefsíðu Kolviðar formlega með því að kolefnisjafna fyrstu einkabifreiðina á Íslandi. Ólafur sagði einstakt í heiminum að félagasamtök, eins og þau sem standa að stofnun Kolviðar, beiti sér fyrir aðgerðum sem miðuðu að því að draga úr óæskilegum loftslagsbreytingum.

Nú gefst landsmönnum öllum kostur á að reikna út á einfaldan hátt það magn koldíoxíðs (CO2) sem þeir losa út í andrúmsloftið með samgöngum og greiða fyrir þann fjölda trjáa sem þarf til að kolefnisjafna þær.
Við þetta tækifæri undirrituðu Guðfinna S. Bjarnadóttir, formaður stórnar Kolviðar og Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri samning um fyrsta ræktunarland sjóðsins, sem er Geitasandur á Rangárvöllum.

Bakhjarlar Kolviðar eru Ríkisstjórn Íslands, Orkuveita Reykjavíkur og Kaupþing. Fulltrúar þessara aðila tóku við viðurkenningum frá Kolviði við athöfnina.

Ríkisstjórn Íslands hefur nú kolefnisjafnað allar bifreiðar Sjórnarráðsins og frá og með 1. janúar 2008 verður öllum ráðuneytum og ríkisstofnunum gert að kolefnisjafna vegna flugferða ríkisstarfsmanna.
Orkuveita Reykjavíkur hefur verið leiðandi í rannsóknum á sviði kolefnisbindingar og hefur unnið ötullega að gróðursetningu á starfssvæðum sínum.
Kaupþing tók við viðurkenningu sem fyrsta fyrirtækið á Íslandi sem hefur kolefnisjafnað öll ökutæki starfsmanna og allar flugferðir sem farnar eru á vegum bankans fyrir.

Formenn stjórna Skógræktarfélags Íslands og Landverndar lýstu yfir ánægju sinni með að Kolviður skuli vera orðin að veruleika og þökkuðu öllum þeim fjölmörgu aðilum sem lögðu hönd á plóg við undirbúning verkefnisins.
Framkvæmdastjóri Kolviðar er Soffía Waag Árnadóttir.

Þumalfingursregla er að árlega þurfi að gróðursetja tré fyrir sem svarar andvirði einnar áfyllingar á eldsneytistank bifreiðar – einn tankur á ári!



Fara til baka