Kolefnisbinding bílaflota ríkisins
Undirritaður hefur verið samningur milli forsætisráðuneytisins og Kolviðar um kolefnisbindingu vegna losunar koldíoxíðs frá vélknúnum ökutækjum í eigu ríkisins fyrir árið 2008. Ríkiskaup hefur lagt mat á heildarlosun ökutækja í eigu ríkisins og á þeim grundvelli er samningurinn gerður. Áætlað er að losun frá ökutækjum í eigu ríksins muni nema um 9000 tonnum af CO2 á þessu ári og til að binda samsvarandi magn kolefnis mun Kolviður gróðursetja um 84 þúsund plöntur á gróðursnauðum Geitasandi á Rangárvöllum.
Bruni á jarðefnaeldsneyti sem orkugjafa, eyðing skóga og jarðvegseyðing eru talin vera helstu orsakavaldar aukins styrks gróðurhúsalofttegunda í andrúmslofti, sem aftur leiðir til hlýnunar. Koldíoxíð (CO2) er að magni til mikilvirkasta gróðurhúsalofttegundin. Tvær leiðir eru í dag helst færar til þess að koma á jafnvægi í kolefnisbúskap jarðarinnar, annars vegar að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda út í andrúmsloftið - hins vegar að binda kolefni með skógrækt og landgræðslu. Markmið ríkisstjórnar Íslands í loftslagsmálum er að minnka nettólosun um 75% fyrir árið 2050. Eitt af markmiðum íslenskra stjórnvalda í loftslagsmálum er að stuðla að aukinni bindingu kolefnis úr andrúmslofti með skógrækt og landgræðslu, endurheimt votlendis og breyttri landnotkun. Þá hefur ríkisstjórnin ákveðið að við endurnýjun á bílaflota ríkisins verði horft til vistvænni ökutækja sem losa minna magn gróðurhúsalofttegunda. Með þessum samningi vilja stjórnvöld bæta óhjákvæmilega losun bílaflota ríkisins með kolefnisbindingu í skógrækt og landgræðslu
Fara til baka







