Hnattræn hlýnun sem rakin er til gróðurhúsaáhrifa er talin ein mesta umhverfisógn samtímans.
Bruni á jarðefnaeldsneyti sem orkugjafa, eyðing skóga og jarðvegseyðing eru talin vera helstu orsakavaldar aukins styrks gróðurhúsalofttegunda í andrúmslofti, sem aftur leiðir til hlýnunar. Koldíoxíð (CO2) er að magni til mikilvirkasta gróðurhúsalofttegundin.
Tvær leiðir eru helst færar til þess að koma á jafnvægi í kolefnisbúskap jarðarinnar, annars vegar að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda út í andrúmsloftið - hins vegar að binda kolefni í jörðu með skógrækt. Með því að binda kolefni úr koldíoxíði andrúmsloftsins með skógrækt verður til súrefni.
Allir þurfa að leggjast á eitt um að vinna gegn gróðurhúsaáhrifunum. Þar skiptir framlag hvers og eins máli.
Kolefnisjöfnun næst þegar bundið er jafn mikið kolefni í gróðri og losað er út í andrúmsloftið. Með kolefnisbindingu geta einstaklingar og fyrirtæki vegið upp á móti óæskilegum útblásturáhrifum sínum af völdum brennslu jarðefnaeldsneytis og gerst þannig “kolefnishlutlaus”. Kolviður gerir kleift að kolefnisjafna bifreiðanotkun og flugferðir.
Þýðir kolefnisjöfnun eins konar “syndayfirbót”?
Nei, ekki er um að ræða neins konar “syndayfirbót” í þeim skilningi að viðskiptavinir Kolviðar megi í framtíðinni valda loftmengun að vild svo fremi sem þeir greiði fyrir samsvarandi bindingu koldíoxíðs í jarðvegi. Hnattræn hlýnun sem rakin er til aukins styrks gróðurhúsalofttegunda í andrúmslofti er talin ein mesta umhverfisógn sem heimsbyggðin stendur frammi fyrir, eins og áður sagði. Skilvirkasta leiðin til árangurs er að draga úr losun mengandi lofttegunda. Því verður að hvetja hvern og einn til að gera sem mest til að leita leiða að því markmiði að draga úr eigin losun - samfara því að binda í jarðvegi það magn koldíoxíðs sem óhjákvæmilega losnar úr læðingi við daglegt líf.

Jafnaðu þig í einum grænum!
Af hverju kolefnisjöfnun?
Hér getur þú reiknað út
það magn koldíoxíðs (CO2) sem
þú losar út í andrúmsloftið í akstri.
það magn koldíoxíðs (CO2) sem
þú losar út í andrúmsloftið í akstri.
Markmið Kolviðar er að hvetja Íslendinga
til þess að verða fyrsta þjóð heims til að
kolefnisjafna útblástursáhrif samgöngutækja
sinna með skógrækt.
til þess að verða fyrsta þjóð heims til að
kolefnisjafna útblástursáhrif samgöngutækja
sinna með skógrækt.
Vottun og innra eftirlit
Endurskoðunartíminn KPMG mun í sam-vinnu við óháða fagaðila á sviði skógræktar
og landgræðslu votta ferlið og staðfesta að
Kolviður sjái fyrir þeirri bindingu kolvetnis
sem sjóðurinn tekur að sér.
Hlutverk kolviðar er að gera
einstaklingum, fjölskyldum,
stofnunum og fyrirtækjum
kleift að jafna kolefnislosun
sína vegna samgangna með skógrækt.
Nafnið Kolviður má rekja til Kolviðar
á Vatni, fornkappa sem felldur var við
Kolviðarhól og heygður.
einstaklingum, fjölskyldum,
stofnunum og fyrirtækjum
kleift að jafna kolefnislosun
sína vegna samgangna með skógrækt.
Nafnið Kolviður má rekja til Kolviðar
á Vatni, fornkappa sem felldur var við
Kolviðarhól og heygður.






